„Sigur sem við þurftum á að halda“

Róbert Sigurðsson lék virkilega vel fyrir Stjörnuna í kvöld en hann skoraði 15 stig og gaf 7 stoðsendingar í 77:75 sigrinum á Njarðvík í Dominos-deildinni í Ásgarði. 

„Þetta var mjög ljúfur sigur og sigur sem við þurftum á að halda,“ sagði Róbert þegar mbl.is spjallaði við hann í Ásgarði. Róbert var örlagavaldur í leiknum því hann setti niður tvo þrista í röð á lokakafla leiksins. Snéri þá stöðunni úr 65:58 í 71:68. 

„Ég tapaði boltanum klaufalega og varð eitthvað pirraður. Var ósáttur með þetta. Síðan náði ég að stela boltanum, þeir féllu frá mér og ég setti skotið niður. Þá kom sjálfstraustið aðeins og síðan fékk ég líka opið skoti í næstu sókn.“

Viðtalið við Róbert í heild sinni er að finna í meðfylgjandi myndskeiði. 

Róbert Sigurðsson og Ragnar Helgi Friðriksson í leiknum í kvöld.
Róbert Sigurðsson og Ragnar Helgi Friðriksson í leiknum í kvöld. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert