Góður leikur Martins ekki nóg

Martin Hermannsson var flottur í kvöld.
Martin Hermannsson var flottur í kvöld. mbl.is/Kristinn Magnússon

Martin Hermannsson og félagar í Chalons-Reims þurftu að gera sér stórt tap að góðu er það mætti Bourg á heimavelli sínum í efstu deild Frakklands í körfubolta í kvöld. Martin var stigahæstur í sínu liði með 18 stig.

Chalons-Reims er í 14. sæti deildarinnar með 14 stig eftir 17 leiki, tveimur stigum frá 8. sæti sem er sæti í úrslitakeppninni en sex stigum fyrir ofan fallsæti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert