Hallgrímur hættur með Njarðvík

Hallgrímur Brynjólfsson
Hallgrímur Brynjólfsson mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur og Hallgrímur Brynjólfsson hafa komist að samkomulagi um að Hallgrímur láti af störfum sem þjálfari meistaraflokks kvenna hjá félaginu. Félagið tilkynnti þetta á Facebook-síðu sinni í kvöld. 

Njarðvík er á botni Dominos-deildarinnar án stiga eftir 16 umferðir. Liðið komst aftur á móti alla leið í úrslitaleik Maltbikarsins en tapaði að lokum fyrir Keflavík. 

Ragnar Halldór Ragnarsson tekur við liðinu út leiktíðina, en hann var aðstoðarþjálfari liðsins á síðasta tímabili. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert