Ægir Þór Steinarsson og félagar hans í spænska körfuboltaliðinu Tau Castello lögðu Palencia á útivelli í B-deild Spánar í körfubolta í kvöld. Ægir skoraði fjögur stig, tók þrjú fráköst og gaf þrjár stoðsendingar í leiknum.
Ægir og félagar hafa unnið fimm af síðustu sex leikjum sínum í deildinni og eru sem stendur í 6. sæti deildarinnar. Níu efstu sætin gefa þátttökurétt í úrslitakeppni um að fara upp í efstu deild.