Lewis frá Hetti til Finnlands

Kelwin Lewis leikur ekki meira með Hetti.
Kelwin Lewis leikur ekki meira með Hetti. mbl.is/Árni Sæberg

Bandaríski körfuboltamaðurinn Kelvin Lewis er búinn að yfirgefa Hött á Egilsstöðum og ganga í raðir Kauhajoen Karhu í efstu deild Finnlands. Karfan.is greindi frá þessu í dag.

Þrjár umferðir eru eftir af Dominos-deild karla og er Höttur fallinn úr deildinni. Þrátt fyrir það hefur Lewis skorað 26 stig eð meðaltali í leik. Höttur mun ekki fá mann í staðinn fyrir Lewis og leikur því þrjá síðustu leikina án atvinnumanns.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert