Stjarnan marði ÍR í daufum leik

Collin Pryor skýtur yfir Danero Thomas í kvöld.
Collin Pryor skýtur yfir Danero Thomas í kvöld. mbl.is/Árni Sæberg

Stjarnan vann 64:57-heimasigur á ÍR í öðrum leik liðanna í átta liða úrslitum í úrslitakeppninni um Íslandsmeistaratitil karla í körfubolta í kvöld. ÍR vann fyrsta leikinn í Seljaskóla en Garðbæingar hafa nú jafnað einvígið eftir sigur í ansi bragðdaufum leik í Ásgarði.

Báðum liðum gekk illa að skora á upphafsmínútunum en það voru svo heimamenn í Stjörnunni sem tóku forystuna á meðan lítið gekk upp hjá ÍR í fyrsta leikhluta sem endaði 21:7 Stjörnunni í vil.

Gestirnir tóku heldur betur við sér eftir það og skoruðu 29 stig gegn 10 í síðari leikhlutann til að hafa fimm stiga forystu í hálfleik, 36:31. Gæfumunurinn fyrir Breiðhyltinga var skotnýtingin, en eftir að hafa lítið sem ekkert hitt í byrjun leiks fóru menn eins og Hákon Örn Hjálmarsson og Matthías Orri Sigurðarson að finna körfuna ögn betur.

Það var þó rauði þráðurinn í gegnum leikinn allan að liðunum gekk einfaldlega afleitlega að skora. Eftir að þau skiptust á að eiga góðan leikhluta í fyrri hálfleik var sá þriðji slakur hjá báðum. Bæði lið settu aðeins 12 stig er skotnýtingin hélt áfram að vera vandamál.

Stjörnumenn bitu svo frá sér í síðasta leikhlutanum. Eysteinn Bjarni Ævarsson, sem hafði farið illa með nokkur færi í leiknum og ekkert skorað, setti niður tvo mikilvæga þrista og Hlynur Elías Bæringsson var drjúgur í vörninni en hann tók alls 18 fráköst. ÍR-ingar skoruðu aðeins níu stig í fjórða leikhluta og tókst því ekki að skora 10 stig eða meira í tveimur leikhlutum í kvöld.

Stjarnan 64:57 ÍR opna loka
99. mín. skorar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert