Þjálfari Cleveland í veikindaleyfi

Tyronn Lue er að glíma við veikindi.
Tyronn Lue er að glíma við veikindi. AFP

Tyronn Lue, þjálfari Cleveland Cavaliers í NBA-deildinni í körfubolta, mun ekki stýra liði sínu í næstu leikjum vegna heilsufars. Hann hefur verið að glíma við verki í brjósti og svefnleysi í allan vetur.

Hann þurfti t.a.m. að vera í búningsklefa liðsins í seinni hálfleik í leiknum gegn Chicago Bulls aðfaranótt sunnudags, vegna vanlíðanar. Ekki er víst hversu lengi Lue verður frá. 

„Eftir nokkra umhugsun mun ég stíga til baka í einhvern tíma. Það er það besta fyrir liðið og heilsuna mína. Þrátt fyrir margar skoðanir hjá læknum, höfum við ekki fundið út nákvæmlega hvað er að hrjá mig,“ sagði Lue við bandaríska fjölmiðla. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert