Jón tekur við kvennaliði Keflavíkur

Jón Guðmundsson.
Jón Guðmundsson. Facebook/Keflavík Karfa

Jón Guðmundsson mun þjálfa kvennalið Keflavíkur í körfubolta á næsta tímabili en félagið staðfesti það í kvöld.

Sverrir Þór Sverrisson hefur stýrt kvennaliðinu um árabil og með góðum árangri en hann mun, ásamt Jóni, taka við karlaliði Keflavíkur af Friðrik Inga Rúnarssyni sem er hættur í þjálfun.

Jón er reynslumikill þjálfari og hefur þjálfað yngri flokka Suðurnesjaliðsins undanfarin ár en hann hefur einnig verið í hópi bestu körfuboltadómara landsins.

Kvennalið Keflavíkur varð Íslands- og bikarmeistari á síðasta tímabili og svo aftur bikarmeistari í ár. Liðið féll hins vegar úr leik í úrvalsdeildinni í undanúrslitunum gegn Val.

Sverrir Þór Sverrisson.
Sverrir Þór Sverrisson. mbl/Hari
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert