Dagur í Stjörnuna - Hlynur og Tómas áfram

Hlynur Bæringsson, Dagur Kár Jónsson og Tómas Þórður Hilmarsson á …
Hlynur Bæringsson, Dagur Kár Jónsson og Tómas Þórður Hilmarsson á Mathúsi Garðabæjar í dag. mbl.is/Sindri

Dagur Kár Jónsson er genginn í raðir körfuknattleiksliðs Stjörnunnar á nýjan leik en hann hefur skrifað undir samning til næstu tveggja ára.

Dagur hefur leikið með St. Francis í bandaríska háskólakörfuboltanum og svo Grindavík síðustu ár, en snýr nú aftur í lið Stjörnunnar þar sem hann er alinn upp.

Landsliðsfyrirliðinn Hlynur Bæringsson og Tómas Þórður Hilmarsson, félagi hans úr landsliðinu, hafa einnig skrifað undir samninga til tveggja ára við Stjörnuna. Þeir Tómas og Dagur léku einmitt saman í yngri flokkum Stjörnunnar og unnu þar saman titla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert