Helgi Már ekki meira með KR

Helgi Már Magnússon með sendingu framhjá bróður sínum í liði …
Helgi Már Magnússon með sendingu framhjá bróður sínum í liði Hauka, Finni Atla Magnússyni. mbl.is/Stella Andrea

Helgi Már Magnússon mun ekki klára úrslitarimmu KR og Tindastóls á Íslandsmótinu í körfubolta þar sem hann er farinn aftur til Bandaríkjanna vegna anna í vinnu.

Helgi kom í lið KR í undanúrslitunum á móti Haukum og stóð sig með miklum ágætum, þrátt fyrir að hafa hætt í körfubolta árið 2016. 

Helgi skoraði sjö stig, tók þrjú fráköst og gaf eina stoðsendingu að meðaltali á 16 mínútum í þeim sex leikjum sem hann spilaði í úrslitakeppninni. Þriðji leikur einvígisins er annað kvöld á Sauðárkróki. Karfan.is greindi fyrst frá. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert