Helena og Kristófer leikmenn ársins

Kristófer Acox og Helena Sverrisdóttir með verðlaunin glæsilegu sem leikmenn …
Kristófer Acox og Helena Sverrisdóttir með verðlaunin glæsilegu sem leikmenn ársins. mbl.is/Árni Sæberg

Kristófer Acox úr KR og Helena Sverrisdóttir úr Haukum voru valin leikmenn ársins í Dominos-deildum kvenna- og karla í körfuknattleik en valið var kunngert á lokahófi KKÍ í hádeginu.

Kristófer lék stórt hlutverk með KR-ingum á leiktíðinni og fór á kostum í úrslitakeppninni þar sem KR-ingar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn fimmta árið í röð.

Helena dró vagninn fyrir Haukana en þessi frábæra körfuknattleikskona átti magnað tímabil og átti stærstan þátt í að tryggja Haukum Íslandsmeistaratitilinn.

Dómari ársins í Dominos-deildum karla og kvenna var valinn Sigmundur Már Herbertsson.

Lið ársins í karlaflokki.
Lið ársins í karlaflokki. mbl.is/Árni Sæberg

Lið ársins í Dominos-deild karla:

Pétur Rúnar Birgisson, Tindastóli

Sigtryggur Arnar Björnsson, Tindastóli

Kári Jónsson, Haukum

Kristófer Acox, KR

Hlynur Bæringsson Stjörnunni

Þjálfari ársins: Finnur Freyr Stefánsson, KR

Besti ungi leikmaðurinn: Ingvi Þór Guðmundsson, Grindavík

Besti erlendi leikmaðurinn: Antonio Hester, Tindastóli

Prúðasti leikmaðurinn: Axel Kárason, Tindastóli

Varnarmaður ársins: Kristófer Acox, KR

Lið ársins í kvennaflokki.
Lið ársins í kvennaflokki. mbl.is/Árni Sæberg

Lið ársins í Dominos-deild kvenna:

Þóra Kristín Jónsdóttir, Haukum

Guðbjörg Sverrisdóttir, Val

Thelma Dís Ágústsdóttir, Keflavík

Helena Sverrisdóttir, Haukum

Elín Sóley Hrafnkelsdóttir, Val

Þjálfari ársins: Ingvar Guðjónsson, Haukum

Besti ungi leikmaðurinn: Dagbjört Dögg Karlsdóttir, Val

Besti erlendi leikmaðurinn: Danielle Rodriguez, Stjörnunni

Varnarmaður ársins: Dýrfinna Arnardóttir, Haukum

Prúðasti leikmaðurinn: Thelma Dís Ágústsdóttir, Keflavík

Lið ársins í 1. deild karla:

Eyjólfur Ásberg Halldórsson, Skallagrími

Snorri Vignisson, Breiðabliki

Sigvaldi Eggertsson, Fjölni

Bjarni Guðmann Jónsson, Skallagrími

Jón Arnór Sverrisson, Hamri

Þjálfari ársins: Finnur Jónsson, Skallagrími

Besti ungi leikmaðurinn: Sigvaldi Eggertsson, Fjölni

Leikmaður ársins: Eyjólfur Ásberg Halldórsson, Skallagrími

Lið ársins í 1. deild kvenna:

Berglind Karen Ingvarsdóttir, Fjölni

Perla Jóhannsdóttir, KR

Hanna Þráinsdóttir, ÍR

Heiða Hlín Björnsdóttir, Þór Ak.

Unnur Lára Ásgeirsdóttir, Þór Ak.

Þjálfari ársins: Benedikt Guðmundsson, KR

Besti ungi leikmaðurinn: Eygló Kristín Óskarsdóttir, KR

Leikmaður ársins: Perla Jóhannsdóttir, KR

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert