Helena búin að semja í Ungverjalandi

Helena Sverrisdóttir og dóttir hennar Elín Hildur Finnsdóttir með Íslandsmeistarabikarinn …
Helena Sverrisdóttir og dóttir hennar Elín Hildur Finnsdóttir með Íslandsmeistarabikarinn í vor. mbl.is/Hari

Helena Sverrisdóttir, besti leikmaður Íslandsmóts kvenna í körfuknattleik á nýafstaðinni leiktíð, hefur samið við ungverskt félag og mun því yfirgefa herbúðir Hauka.

Þetta kemur fram á vef Rúv, en þar segir að Helena hafi samið við Cegled í ungversku úrvalsdeildinni til eins árs. Liðið varð í sjötta sæti deildarinnar í vetur.

Helena er ekki að fara á ókunnar slóðir, en hún lék í Ungverjalandi tímabilið 2013-2014. Þá hefur hún einnig leikið í Slóvakíu og í Póllandi sem atvinnumaður í Evrópu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert