Tryggvi og félagar úr leik

Tryggvi Snær Hlinason.
Tryggvi Snær Hlinason. Valenciabasket.com

Tryggvi Snær Hlinason og félagar hans í Valencia eru úr leik í baráttunni um spænska meistaratitilinn í körfuknattleik.

Valencia tapaði gegn Gran Canaria, 89:92, eftir framlengingu í æsispennandi oddaleik liðanna í átta liða úrslitunum á heimavelli Valencia í kvöld.

Tryggvi Snær lék í rúmar tvær mínútur en náði ekki að setja mark sitt á leikinn á þeim tíma.

Gran Canaria mætir Real Madrid í undanúrslitunum sem hefjast strax á sunnudaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert