Kristinn snýr aftur í Hauka

Kristinn Marínósson er genginn til liðs við uppeldisfélag sitt Hauka.
Kristinn Marínósson er genginn til liðs við uppeldisfélag sitt Hauka. mbl.is/Hari

Körfuknattleikskappinn Kristinn Marínósson er genginn til liðs við Hauka en það er Karfan.is sem greinir frá þessu í kvöld. Hann hefur spilað með ÍR í úrvalsdeildinni, undanfarin tvö ár en hefur ákvað að snúa heim á nýjan leik en hann er uppalinn í Hafnafirði.

Hann var með 6,9 stig og 2,9 fráköst að meðaltali í leik með ÍR á síðustu leiktíð en liðið fór alla leið í undanúrslit úrslitakeppninnar þar sem liðið tapaði fyrir Tindastól. 

„Ég er virkilega spenntur að vera kominn í rautt aftur. Ég skoðaði nokkra möguleika en þetta er flottur leikmannahópur sem ég þekki vel, frábær aðstaða og umgjörð og að sjálfsögðu vógu mínir menn í Maníunni þungt í minni ákvörðun,“ sagði Kristinn í samtali við Karfan.is í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert