Finnur hættur með KR

Finnur Freyr Stefánsson.
Finnur Freyr Stefánsson. mbl.is/Árni Sæberg

Finnur Freyr Stefánsson hefur látið af störfum sem þjálfari karlaliðs KR í körfuknattleik en þetta kemur fram á Twitter-síðu KR-inga.

Undir stjórn Finns hefur KR hampað Íslandsmeistaratitlinum undanfarin fimm ár.

„Finnur Freyr Stefánsson hefur ákveðið að róa á önnur mið eftir mögnuð ár hjá KR. KR þakkar Finni fyrir frábært starf undanfarin ár og óskar honum velgengni í þeim verkefnum sem hann tekur sér fyrir hendur,“ segir á Twitter-síðu KR.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert