LeBron ekki viss hvað verður

LeBron ræðir við fjölmiðla í nótt.
LeBron ræðir við fjölmiðla í nótt. AFP

„Ég hef enga hugmynd núna, ég þarf að hugsa um fjölskylduna. Ég þarf að hugsa hvað sé best fyrir krakkana mína,“ sagði LeBron James, ein skærasta körfuboltastjarna veraldar, í samtali við bandaríska fjölmiðla eftir tap hans og liðsfélaga hans í Cleveland Cavaliers í úrslitaeinvíginu við Golden State Warriors. 

LeBron James segir fjölskylduaðstæður sínar breyttar frá því hann skipti um félag síðast. 

„Fjölskyldan hefur mikið að segja um þessa ákvörðun. Strákarnir mínir eru eldri en þeir voru síðast þegar ég skipti um félag og börnin eru orðin fleiri. Þetta verður því að koma í ljós,“ sagði LeBron. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert