Njarðvík semur við Mario Matasovic

Njarðvík hefur samið við Mario Matasovic um að leika með …
Njarðvík hefur samið við Mario Matasovic um að leika með liðinu á næstu leiktíð. Ljósmynd/UMFN

Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur hefur samið við Mario Matasovic um að leika með liðinu á komandi vetri. Mario er fæddur 1993 og kemur frá Króatíu. Hann fékk snemma tækifæri í heimalandinu og lék sína fyrstu leiki í efstu deild veturinn 2009-2010, þá 16 ára gamall. Mario er 203 sentímetra miðherji og var á sínum tíma t.d. í U18 ára landsliði Króata og það var einmitt á ferðalagi með þeim í USA sem hann vann sér inn tækifærið á að komast í háskólaboltann. 

Hann hefur dvalið undanfarin fimm ár í Bandaríkjunum í háskólaboltanum, fyrst með Western Michigan í tvö ár en færði sig svo til Sacret Heart í NEC conference þar sem hann spilaði í tvö ár (redshirt í eitt ár áður) og skilaði tæpum 12 stigum og 6,4 fráköstum í vetur og var með rúmlega 63% tveggja stiga nýtingu. Hann var einnig fyrirliði hjá Sacret Heart í vetur. Von er á Mario um mánaðamótin ágúst/september.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert