Mikil endurnýjun hjá landsliðinu

Breki Gylfason er nýliði í íslenska landsliðinu.
Breki Gylfason er nýliði í íslenska landsliðinu. mbl.is/Árni Sæberg

Íslenska karlalandsliðið í körfuknattleik mætir Búlgaríu og Finnlandi ytra dagana 29. júní og 2. júlí í undankeppni HM. Craig Pedersen og hans þjálfarateymi hefur valið þá 12 leikmenn sem skipa lið Íslands í þessum tveimur leikjum. Íslenska liðið er í góðir stöðu í riðlinum og situr í 2.-3. sæti ásamt Finnum með tvo sigra og tvö töp. Þrjú efstu lið riðilsins fara áfram í milliriðla og sameinast riðill Íslands E-riðli en þar eru Rússland, Frakkland og Bosnía í þremur efstu sætunum. Lið taka stig með sér í milliriðla og fara þrjú efstu lið riðilsins beint á HM.

Sigur gegn Búlgaríu tryggir liðinu sæti í milliriðli en fari svo að liðið tapi þá verða strákarnir að treysta á sigur gegn Finnum, þann 2. júlí næstkomandi til þess að komast áfram í milliriðla. Finnska liðið er sterkara en það búlgarska, á pappírum og því er leikurinn gegn Búlgaríu afar mikilvægur en fyrri leik liðanna i undankeppninni lauk með 77:74 sigri búlgarska liðsins í Laugardalshöllinni.

Lokahópurinn fyrir leikina gegn Búlgaríu og Finnlandi:
Breki Gylfason – Appalachian State/Haukar, USA (Nýliði)
Elvar Már Friðriksson – Denain Voltaire, Frakkland (32)
Haukur Helgi Pálsson Briem - Cholet Basket, Frakkland (65)
Hjálmar Stefánsson - Haukar (Nýliði)
Hlynur Bæringsson - Stjarnan (120)
Hörður Axel Vilhjálmsson - Kymis, Grikkland (72)
Jón Axel Guðmundsson – Davidson/Grindavík, USA (5)
Kári Jónsson - Haukar (7)
Kristófer Acox - KR (34)
Martin Hermannsson - Châlons-Reims, Frakkland (60)
Tryggvi Snær Hlinason - Valencia, Spánn (27)
Ægir Þór Steinarsson - Tau Castelló, Spánn (53)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert