Íslenska liðið heldur til Þýskalands

Íslensku leikmennirnir kátir í Leifsstöð.
Íslensku leikmennirnir kátir í Leifsstöð. Ljósmynd/KKÍ

Laugardaginn 14. júlí mun U20 karlalandsliðið í körfubolta hefja leik í A-deild Evrópukeppninnar sem haldin verður í Chemnitz í Þýskalandi.

Þetta er í annað sinn í sögunni sem Ísland er á meðal 16 bestu þjóða Evrópu í þessum aldursflokki og keppa því  í A-deild EM. Það var í fyrsta sinn í fyrra 2017 sem Ísland átti lið í A-deild U20 karla, tókst liðinu þá komast í 8-liða úrslit mótsins og hélst því upp í A-deild.  

Mótið fer fram 14.-22. júlí og verða Serbía, Svíþjóð og Ítalía andstæðingar Íslands í riðlinum. Eftir riðlakeppnina verður svo leikið um sæti. 38 af 51 þjóð innan evrópska körfuboltasambandsins senda lið til keppni í Evrópukeppni U20 karla, 16 þjóðir eru í A-deild og 22 í B-deild. Engin C-deild er í U20 á EM.

Fyrsti leikurinn verður á laugardag kl.18:00 að staðar tíma eða 16:00 að íslenskum tíma þegar strákarnir okkar mæta Serbíu. Allar upplýsingar um mótið hjá strákunum má sjá hér og leikjaplan þeirra má sjá hér.

Allir leikir A og B deilda EM yngri landsliða eru í beinni útsendingu á Youtube-rás FIBA og að sjálfsögðu er einnig lifandi tölfræði frá öllum leikjum þannig að mjög auðvelt er að fylgjast með leikjum Íslands á EM yngri liða.

Hópurinn er svona skipaður:
Adam Eiður Ásgeirsson                 Þór Þ.
Arnór Hermannsson                      KR
Árni Elmar Hrafnsson                    Breiðablik
Bjarni Guðmann Jónsson               Skallagrímur
Eyjólfur Þór Ásbergsson                Skallagrímur
Hákon Örn Hjálmarsson                ÍR
Ingvi Þór Guðmundsson                Grindavík
Jón Arnór Sverrisson                      Keflavík
Sigurkarl Róbert Jóhannesson        ÍR
Snjólfur Marel Stefánsson              Njarðvík
Sveinbjörn Jóhannesson               Breiðablik
Þórir G.Þorbjarnarson                   Nebraska

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert