Stórstjarnan LeBron James horfði á liðsfélaga sína í Los Angeles Lakers vinna sannfærandi 101:78-sigur á Detroit Pistons í sumardeild NBA-körfuboltans í Las Vegas í nótt. Með sigrinum tryggði Lakers sér sæti í undanúrslitum.
Nýliðar og aðrir leikmenn, bæði á samningi hjá félögum og samningslausir, fá tækifæri til að láta ljós sitt skína í sumardeildinni.
Portland Trail Blazers vann 95:80-sigur á Boston Celtics og mætir Memphis Grizzlies sem vann 82:73-sigur á Philadelphia 76ers í undanúrslitum.
Cleveland Cavaliers mætir svo Lakers í hinum undanúrslitaleiknum eftir 82:68-sigur á Toronto Raptors. Tryggvi Snær Hlinason var allan tímann á bekknum hjá Toronto.