Króatískur framherji í Þór

Damir Mijic leikur með Þór Akureyri á næstu leiktíð.
Damir Mijic leikur með Þór Akureyri á næstu leiktíð. Ljósmynd/Thorsport.is

Körfuknattleiksdeild Þór á Akureyri hefur samið við króatíska framherjann Damir Mijic. Hann er 201 cm á hæð og 31 árs gamall. Mijic lék stórt hlutverk með Agrodalm Zagreb sem lauk keppni í 4. sæti í króatísku B-deildinni á síðustu leiktíð.

Lárus Jónsson, þjálfari Þórs, segir að Damir sé fjölhæfur stór leikmaður sem hann hafi séð spila í Zagreb fyrir skömmu. „Honum er ætlað að spila sem framherji og miðherji hjá okkur. Damir ætti að geta stutt vel við þann kjarna sem er fyrir hjá liðinu og verið góð fyrirmynd fyrir unga og efnilega leikmenn því hann æfir þrisvar dag.

Hann og Larry Thomas gætu náð vel saman þar sem báðir eru mjög vinnusamir leikmenn sem vilja bæta sinn leik og æfa aukalega,“ sagði Lárus á heimasíðu Þórs. Þór leikur í 1. deildinni á komandi leiktíð eftir fall úr efstu deild á þeirri síðustu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert