Svekkjandi tap fyrir Rúmeníu

Birna Valgerður Benónýsdóttir var stigahæst í íslenska liðinu.
Birna Valgerður Benónýsdóttir var stigahæst í íslenska liðinu. Ljósmynd/FIBA

Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta skipað leikmönnum 18 ára og yngri mátti þola svekkjandi 63:49-tap fyrir Rúmeníu í þriðja leik sínum í B-deild Evrópumótsins í Austurríki. 

Rúmenska liðið var yfir allan leikinn og 15:8 sigur í þriðja leikhluta dugði íslenska liðinu skammt. Birna Valgerður Benónýsdóttir skoraði 14 stig fyrir íslenska liðið og Ástrós Lena Ægisdóttir gerði tólf stig. 

Íslenska liðið hefur nú unnið einn leik og tapað tveimur á mótinu til þessa. Frídagur er á morgun áður en liðið mætir Kýpur í næsta leik á þriðjudaginn kemur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert