Daði Lár í Hauka

Daði Lár Jónsson mun spila með Haukum á næstu leiktíð.
Daði Lár Jónsson mun spila með Haukum á næstu leiktíð. mbl.is/Hari

Körfuknattleikskappinn Daði Lár Jónsson mun spila með Haukum í Hafnafirði í úrvalsdeild karla í körfuknattleik á næstu leiktíð en það er Karfan.is sem greinir frá þessu. Daði varð samningslaus hjá Keflavík í sumar og ákveðið var, af báðum aðilum, að framlengja það samstarf ekki. Þrátt fyrir að vera einungis 21 árs gamall er Daði ágætlega reynslumikill.

Hann er alinn upp hjá Stjörnunni í Garðabæ og spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið árið 2013. Hann gekk til liðs við Keflavík árið 2016 og skoraði hann 7 stig, tók 3 fráköst og gaf 2 stoðsendingar að meðaltali í leik á síðasta tímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert