Haukur Helgi í Meistaradeildina

Haukur Helgi Pálsson.
Haukur Helgi Pálsson. mbl.is/Kristinn Magnússon

Haukur Helgi Pálsson og samherjar hans í franska liðinu Nanterre tryggðu sér í kvöld sæti í Meistaradeild Evrópu í körfuknattleik.

Nanterre burstaði finnska liðið Kauhajoen Karhu 91:58 í síðari viðureign liðanna í umspili sem fram fór á heimavelli Nanterre í kvöld en franska liðið vann einnig leikinn í Finnlandi 91:54.

Haukur Helgi lék í 22 mínútur í kvöld og hann skoraði 9 stig, tók 4 fráköst og gaf 4 stoðsendingar í leiknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert