Kristófer frá næstu vikurnar

Kristófer Acox.
Kristófer Acox. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kristófer Acox, landsliðsmaður í körfubolta, getur ekki spilað næstu vikurnar vegna meiðsla sem hann varð fyrir á æfingu franska liðsins Denain. Kristófer er nýbúinn að jafna sig á veikindum. Fréttablaðið greindi frá. 

Líklegt þykir að Kristófer geti ekki spilað næstu þrjár vikurnar og missir hann því af tveimur leikjum í riðlakeppni frönsku deildarinnar sem og fyrsta deildarleiknum í frönsku B-deildinni. 

Kristófer tognaði illa á ökkla og er bæði marinn og bólginn að sögn Fréttablaðsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert