Fannst við betra liðið

„Þetta er mjög svekkjandi. Mér fannst við vera betra liðið," sagði Gunnar Ólafsson, leikmaður Keflavíkur í samtali við mbl.is eftir 97:90-tap gegn Njarðvík í 1. umferð Dominos-deildar karla í körfubolta í gærkvöldi. 

„Vörnin í þriðja leikhluta var aðeins að klikka og svo fórum við að pæla í dómurum og svona sem við eigum ekki að vera að gera. Ég fékk m.a sjálfur tæknivillu í lokin," sagði Gunnar. 

Viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert