Martin spilaði vel í sigri

Martin Hermannsson var öflugur í liði Alba Berlín í dag.
Martin Hermannsson var öflugur í liði Alba Berlín í dag. mbl.is/Árni Sæberg

Martin Hermannsson skoraði 7 stig, tók 1 frákast og gaf 6 stoðsendingar þegar lið hans Alba Berlín vann 88:68-heimasigur gegn Bayreuth í þýsku bikarkeppninni í körfuknattleik í dag. Martin spilaði í rúmlega 23 mínútur í dag en staðan að loknum fyrsta leikhluta var 15:15.

Leikmenn Alba Berlín settu í annan gír í öðrum leikhluta og unnu hann örugglega, 31:15 og staðan í hálfleik því 50:34. Bayreuth vann þriðja leikhluta, 17:14 en Alba Berlín var sterkari aðilinn í fjórða leikhluta sem lauk með 24:14-sigri Alba Berlín.

Alba Berlín er þar með komið í átta liða úrslit en frá og með þessu tímabili eru það aðeins sextán efstu lið deildakeppninnar frá árinu á undan sem komast í bikarkeppina. Bayern München er ríkjandi bikarmeistari en Alba vann keppnina 2013, 2014 og 2016 og hefur samtals níu sinnum orðið bikarmeistari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert