Helena stigahæst í naumu tapi

Helena Sverrisdóttir leikur vel í Ungverjalandi.
Helena Sverrisdóttir leikur vel í Ungverjalandi. mbl.is/Árni Sæberg

Helena Sverrisdóttir átti ágætan leik fyrir Ceglédi sem varð að sætta sig við 71:68-tap á heimavelli fyrir PEAC-Pécs í efstu deild Ungverjalands í körfubolta í dag. 

Landsliðskonan skoraði 15 stig og var stigahæst í sínu liði. Hún tók svo fjögur fráköst og gaf fjórar stoðsendingar. Helena hefur leikið nokkuð vel með Cegléd á leiktíðinni, en þrátt fyrir það er liðið búið að tapa öllum þremur leikjum sínum til þessa. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert