Clinch sagður vera að snúa aftur í Grindavík

Bandaríkjamaðurinn Lewis Clinch er kominn aftur í raðir Grindavíkur og mun spila með liðinu í Dominos-deild karla í körfuknattleik í vetur samkvæmt heimildum Vísis.

Clinch mun koma í stað Terrell Vinson sem Grindavík sagði upp samningi sínum við en hann meiddist illa í leik gegn Skallagrími fyrr í vikunni.

Clinch hefur tvisvar áður leikið með Grindavík, tímabilin 2013/2014 og 2016/2017. Liðið hefur unnið einn og tapað einum af fyrstu tveimur deildarleikjum sínum á yfirstandandi tímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert