Dagur Kár Jónsson hefur farið vel af stað með austurríska körfuboltaliðinu Flyers Wels og vann liðið sannfærandi 111:72-sigur á Furstenfeld á útivelli í kvöld.
Leikstjórnandinn gerði sér lítið fyrir og skoraði 19 stig, tók tvö fráköst og gaf fjórar stoðsendingar á aðeins 14 mínútum og átti því afar góðan leik.
Eftir tap í fyrstu umferð hafa Dagur og félagar unnið tvo leiki í röð og er liðið í sjötta sæti með fjögur stig.