Grindavík og Keflavík mætast í bikarnum

Grindavík og Keflavík mætast í 32-liða úrslitunum í bikarkeppni karla, …
Grindavík og Keflavík mætast í 32-liða úrslitunum í bikarkeppni karla, Geysisbikarnum. Ljósmynd/Skúli B. Sigurðsson

Nú í hádeginu var dregið í 32-liða úrslitum í bikarkeppni karla í körfuknattleik, Geysisbikarnum, en Geysir er nýr samstarfsaðili vegna bikarkeppni KKÍ.

Stórleikur 32-liða úrslitanna verður viðureign Grindavíkur og Keflavíkur. Tvær aðrar rimmur liða úr Dominos-deildinni eru í 32-liða úrslitunum en Stjarnan tekur á móti Breiðabliki og Njarðvík fær Val í heimsókn. Tindastóll sem er ríkjandi bikarmeistari sækir Reyni Sandgerði heim.

Drátturinn í 32-liða úrslitunum:

Snæfell - Þór Þorlákshöfn
Stjarnan - Breiðablik
Þór Akureyri - Haukar
Selfoss - Sindri
Grindavík - Keflavík
Haukar-b - KR-b
Álftanes - KR
Reynir Sandgerði - Tindastóll
Vestri-b - Hamar
Njarðvík - Valur
Höttur - Skallagrímur
KV - Fjölnir
Grundarfjörður - ÍA

Vestri, Njarðvík-b og ÍR sitja hjá og fara í 16 liða úrslit.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert