Fjórtán ára með tvöfalda tvennu

Þrátt fyrir að vera einungis 14 ára og 164 daga gömul var Kristrún Ríkey Ólafsdóttir allt annað en áhorfandi í sínum fyrsta meistaraflokksleik með Þór Akureyri í næstefstu deild. 

Þór lagði ÍR að velli 52:33 í fyrstu umferð deildarinnar og Kristrún skilaði 13 stigum og tók 13 fráköst. 

Á netmiðlinum Karfan.is er að finna umfjöllun um frammistöðu Kristrúnar og viðtal við hana. 

Þess má geta fyrir áhugafólk um íþróttaættfræði að Kristrún er dóttir Ólafs Jóns Ormssonar sem lék með KR og KFÍ í efstu deild. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert