Clinch mættur til Grindavíkur

Lew­is Cl­inch treður boltanum fyrir Grindavík í leik gegn Þór …
Lew­is Cl­inch treður boltanum fyrir Grindavík í leik gegn Þór Þorlákshöfn. Ljósmynd/Skúli B. Sigurðsson

Bandaríkjamaðurinn Lew­is Cl­inch er genginn til liðs við Grindavík á nýjan leik og gæti spilað með liðinu í kvöld þegar það tekur á móti Keflavík í Dominos-deildinni.

Vefmiðillinn karfan.is greinir frá því að Clinch hafi komið til landsins í morgun og var hann mættur á æfingu með Grindavíkurliðinu. Cl­inch hef­ur tvisvar áður leikið með Grinda­vík, tíma­bil­in 2013/​2014 og 2016/​2017. 

Cl­inch kemur í stað Ter­rell Vin­son sem Grinda­vík sagði upp samn­ingi sín­um við en hann meidd­ist illa í leik gegn Skalla­grími á dögunum

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert