Körfuboltamaðurinn Tyson Chandler er búinn að skrifa undir samning við Los Angeles Lakers í NBA-körfuboltanum. Hann kemur til félagsins frá Phoenix Suns þar sem hann hefur verið síðan 2015.
Chandler varð meistari með Dallas Mavericks árið 2011 og var hann valinn varnarmaður ársins í deildinni árið 2012. Hann lék í Stjörnuleik NBA árið 2013. Chandler varð ólympíumeistari með bandaríska landsliðinu í London 2012 og heimsmeistari tveimur árum á undan í Tyrklandi.
Ásamt Dallas hefur Chandler spilað með Chicago Bulls, New Orleans, Charlotte og New York. Chandler tók 9,1 frákast að meðaltali í leik og skoraði 8,6 stig á síðustu leiktíð með Phoenix.