Haukur Helgi maður leiksins í sigri

Haukur Helgi Pálsson í leik með Nanterre.
Haukur Helgi Pálsson í leik með Nanterre. Ljósmynd/FIBA

Haukur Helgi Pálsson átti fínan leik fyrir Nanterre í 93:71-sigri á Fos-sur-Mer í frönsku A-deildinni í körfubolta í kvöld. Haukur skoraði 15 stig, tók átta fráköst og gaf þrjár stoðsendingar.

Hann var með 23 framlagsstig alls, meira en aðrir á vellinum. Með sigrinum fór Nanterre upp í sjötta sæti deildarinnar þar sem liðið er með tíu stig, en liðin í 5.-11. sæti eru öll með tíu stig, í afar jafnri deild. 

Topplið Asvel er með 14 stig og því stutt upp og niður töfluna fyrir Hauk og liðsfélaga hans. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert