Þórsarar í leit að leikmanni

Baldur Þór Ragnarsson
Baldur Þór Ragnarsson mbl.is/Kristinn Magnússon

Þór frá Þorlákshöfn leitar að leikmanni um þessar mundir til að fylla skarð Litháans Gintautas Matulis sem er meiddur. 

Baldur Þór Ragnarsson þjálfari Þórs staðfestir þetta í samtali við netmiðilinn Karfan.is. Þar kemur fram að Matulis er farinn heim til Litháen í endurhæfingu. Hann verður ekki leikfær fyrr en eftir áramót en Baldur segir ekki útilokað að leikmaðurinn snúi aftur til Þorlákshafnar þegar hann hefur náð heilsu. 

Þór hefur unnið einn af fyrstu sex leikjum sínum í Dominos-deild karla í körfuknattleik og er liðið í 11. sæti deildarinnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert