Nóg að gera hjá Davíð

Davíð Tómas Tómasson
Davíð Tómas Tómasson Ljósmynd/KKÍ

Fleiri úr íslensku íþróttalífi en karlalandsliðið í knattspyrnu eru staddir í Belgíu í dag. Alþjóðadómarinn Davíð Tómas Tómasson mun þar annast dómgæslu í kvöld. 

Davíð dæmir leik Spirou Basket og Istanbul BBSK í Evrópubikar karla í körfuknattleik í kvöld en leikurinn verður leikinn í Charleroi. 

Davíð nýtur trausts á alþjóðavettvangi því hann er nú að dæma í sjötta sinn erlendis frá því keppnistímabilið hófst í haust. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert