Anthony yfirgefur Houston

Carmelo Anthony
Carmelo Anthony AFP

Carmelo Anthony hefur komist að samkomulagi við forráðamenn Houston Rockets um að rifta samningi hans við félagið. 

Ekki er ljóst hvað tekur við hjá Anthony sem ekki hefur verið notaður í síðustu tveimur leikjum liðsins. 

Anthony er 34 ára gamall og þrefaldur ólympíumeistari með Bandaríkjunum. Hann lék í fyrra með Oklahoma City Thunder en staldraði aðeins við þar í eitt tímabil. Nú lék hann aðeins tíu leiki fyrir Houston. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert