Vorum í kokinu á þeim í 40 mínútur

Logi Gunnarsson skotbakvörður Njarðvíkinga sagði sína menn hafa verið ferska í kvöld og að liðið hafi haft það strax frá upphafi sem skipun að pressa stíft á bakverði Grindvíkinga allt kvöldið, þegar Njarðvík lagði Grindavík að velli, 90:79, á útivelli í Dominos-deild karla í körfuknattleik.

Þetta gerðu þeir og herbragðið virkaði vel.  Logi sagði bakvarðasveitina það sterka sem stendur að hann geti t.a.m beitt sér að fullu allar þær mínútur sem hann spilar.   Logi sagði breiddina á liði Njarðvíkinga hafa haft mikið að segja með lokaúrslit kvöldsins og bjuggust Logi og Njarðvíkingar við því að leikurinn yrði erfiður. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert