Tryggvi frákastahæstur í tapi

Tryggvi Snær skoraði átta sig og tók tíu fráköst í …
Tryggvi Snær skoraði átta sig og tók tíu fráköst í spænsku A-deildinni í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Tryggvi Snær Hlinason átti fínan leik fyrir Obradoiro þegar liðið sótti Murcia heim í spænsku A-deildinni í körfuknattleik í dag en leiknum lauk með 80:58-sigri Murcia. Tryggvi skoraði átta stig í leiknum og tók tíu fráköst, mest allra á vellinum. 

Jafnfræði var með liðunum í fyrsta leikhluta en Murcia vann annan leikhluta með 10 stigum og róðurinn því þungur fyrir Obradoiro í síðari hálfleik en staðan í hálfleik var 41:29, Murcia í vil. Murcia vann þriðja leikhluta með fjórum stigum, 21:17, og tókst leikmönnum Obradoiro ekki að snúa leiknum sér í hag í fjórða leikhluta.

Tryggvi spilaði í tæpar 23 mínútur í leiknum en Obradoiro er í fjórtánda sæti deildarinnar með 6 stig eftir fyrstu 9 leiki sína, tveimur stigum frá fallsæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert