Harden fór á kostum

James Harden skoraði 47 stig fyrir Houston.
James Harden skoraði 47 stig fyrir Houston. AFP

James Harden fór mikinn með Houston Rockets þegar liðið lagði Utah Jazz að velli í nótt 102:97 í NBA-deildinni í körfuknattleik.

Harden skoraði 47 stig, tók 6 fráköst og gaf 5 stoðsendingar í fjórða sigri Houston í röð. Donovan Mitchel var stigahæstur í liði Utah með 23 stig.

Grikkinn öflugi Giannis Antetokounmpo skoraði 32 stig fyrir Milwaukee Bucks, tók 12 fráköst og gaf 5 stoðsendingar í sigri gegn Toronto Raptors 107:104 en þarna mættust tvö efstu liðin í Austurdeildinni þar sem Toronto trónir á toppnum.

Russell Westbrook náði sinni 111. þreföldu tvennu á ferlinum þegar Oklahoa City Thunder hafði betur á móti Chicago Bulls 121:96. Westbrook skoraði 13 stig, tók 16 fráköst og gaf 11 stoðsendingar.

Kevin Durant skoraði 23 stig og Stephen Curry í sigri meistaranna í Golden State Warriors á Memphis Grizzlies.

Úrslitin í nótt:

Sacramento - Minnesota 105:132
Chicago - Oklahoma 96:121
Portland - LA Clippers 131:127
Utah - Houston 97:102
Philadelphia - SA Spurs 96:123
Memphis - Golden State 93:110
Milwaukee - Detroit 107:104
Phoenix - New York 128:110

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert