Helena sú besta í desembermánuði

Brittany Dinkins úr Keflavík er langstigahæst í deildinni.
Brittany Dinkins úr Keflavík er langstigahæst í deildinni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Helena Sverrisdóttir, leikmaður Vals, var besti leikmaður desembermánaðar í Dominos-deild kvenna í körfubolta að mati Morgunblaðsins.

Valur vann alla þrjá leiki sína í desember og komst fyrir vikið upp í fjórða sæti deildarinnar, eftir erfiða byrjun. Helena er með 20 stig, 6,8 stoðsendingar og 7,6 fráköst að meðaltali í fimm leikjum með Val til þessa.

Morgunblaðið spjallaði við Helenu og valdi úrvalslið Dominos-deildarinnar í desember.

Úrvalslið Morgunblaðsins fyrir desember er að finna í blaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert