Áfall hjá Njarðvík fyrir grannaslaginn

Logi Gunnarsson.
Logi Gunnarsson. mbl.is/Golli

Njarðvík hefur orðið fyrir áfalli í aðdraganda grannaslagsins við Keflavík, en liðin eigast við í Dominos-deild karla í körfuknattleik klukkan 19.15 í kvöld.

Reynsluboltinn Logi Gunnarsson verður ekki með Njarðvík í leiknum samkvæmt heimildum mbl.is. Hann er að glíma við meiðsli í nára og verður ekki leikfær. Hann hefur spilað 10 leiki með Njarðvík í deildinni í vetur og skorað að meðaltali 9,4 stig í leik.

Njarðvíkingar munu með sigri setjast í toppsæti deildarinnar, en fyrir leikinn er liðið með 20 stig eins og Tindastóll. Keflavík er í fjórða sætinu með 16 stig og getur því blandað sér enn betur í toppbaráttuna með sigri.

Leikur Keflavíkur og Njarðvíkur hefst klukkan 19.15 í kvöld og verður í beinni textalýsingu hér á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert