Komast Njarðvíkingar á toppinn í kvöld?

Það verður örugglega hart tekist á í Suðurnesjaslagnum í kvöld.
Það verður örugglega hart tekist á í Suðurnesjaslagnum í kvöld. Ljósmynd/Skúli B. Sigurðsson

Lokaleikurinn í 12. umferð Dominos-deildar karla í körfuknattleik fer fram í kvöld þegar erkifjendurnir Keflavík og Njarðvík leiða saman hesta sína í Blue-höllinni í Keflavík.

Njarðvíkingar eiga möguleika á að tylla sér einir á topp deildarinnar. Njarðvík og Tindastóll eru með 20 stig í toppsætum deildarinnar en Stólarnir töpuðu fyrir Þór Þorlákshöfn í gær og með sigri í kvöld fara Njarðvíkingar á toppinn.

Keflvíkingar geta nálgast toppliðin með sigri en þeir eru í þriðja sæti deildarinnar með 16 stig eins og Stjarnan og KR.

Njarðvík hafði betur í fyrri rimmu liðanna þegar þau mættust í Ljónagryfjunni í 1. umferðinni en Njarðvík hrósaði þá sjö stiga sigri 97:90.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert