Þreföld tvenna og tryggði sigurinn í lokin

Nikola Jokic átti frábæran leik fyrir Denver Nuggets í nótt.
Nikola Jokic átti frábæran leik fyrir Denver Nuggets í nótt. AFP

Nikola Jokic átti frábæran leik þegar Denver Nuggets vann nauman sigur á Miami Heat, 103:99, í NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt.

Jokic tryggði sigurinn með körfu þegar rétt um tvær sekúndur voru eftir, áður en Jamal Murray tók svo tvö vítaskot á síðustu sekúndunni. Jokic náði þrefaldri tvennu í leiknum, en hann skoraði 29 stig, tók 11 fráköst og gaf 10 stoðsendingar. Dion Waiters var stigahæstur hjá Miami með 15 stig.

Meistarar Golden State Warriors áttu ekki í vandræðum með New York Knicks í 122:95 sigri. Klay Thompson skoraði 43 stig fyrir Golden State, þar af sjö þriggja stiga körfur. Stephen Curry gaf 14 stoðsendingar í leiknum sem er það mesta sem hann hefur náð í leik á tímabilinu.

Öll úrslit næturinnar má sjá hér að neðan.

Cleveland Cavaliers – Indiana Pacers 115:123
Philadelphia 76ers – Washington Wizards 132:115
Miami Heat – Denver Nuggets 99:103
Toronto Raptors – Atlanta Hawks 104:101
Oklahoma City Thunder – Minnesota Timberwolves 117:119
Phoenix Suns – Sacramento Kings 115:111
Golden State Warriors – New York Knicks 122:95
Los Angeles Clippers – Charlotte Hornets 128:109

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert