Martin á meðal stigahæstu manna

Martin Hermannsson átti fínan leik fyrir Alba Berlín.
Martin Hermannsson átti fínan leik fyrir Alba Berlín. Ljósmynd/eurocupbasketball.com

Martin Hermannsson átti fínan leik fyrir Alba Berlín í 93:84-sigri á Oldenburg í A-deild Þýskalands í körfubolta í dag. Martin skoraði tólf stig í jöfnu liði Alba Berlín, en Rokas Giedraitis var stigahæstur með þrettán stig. 

Íslenski landsliðsmaðurinn tók einnig þrjú fráköst og gaf sex stoðsendingar. Hann nýtti fimm af níu tveggja stiga skotum sínum, en klikkaði á tveimur þriggja stiga skotum. 

Sigurinn var mikilvægur fyrir Alba Berlín í toppbaráttunni. Bayern München er í toppsætinu með 28 stig, Oldenburg er í öðru sæti með 24 stig og Alba Berlín er með 22 stig í þriðja sæti. Bayern og Alba Berlín eru búin að leika einum leik færra en Oldenburg. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert