Sigurganga landsliðskonunnar Hildar Bjargar Kjartansdóttur og samherja hennar í Celta Zorka í spænsku B-deildinni í körfuknattleik hélt áfram í gærkvöld en þá unnu þær heimasigur á Barca CBS, 67:54.
Þetta var átjándi sigur Celta í jafnmörgum leikjum í vetur og liðið er með þriggja sigra forskot á næsta lið, Ardoi.
Hildur lék í 26 mínútur og skoraði 8 stig ásamt því að taka sex fráköst í leiknum. Barca, sem tilheyrir íþróttastórveldinu Barcelona, er í fjórða sæti deildarinnar og sigurinn því góður hjá Celta.