Pedersen valdi 17 fyrir síðustu leikina

Jón Arnór Stefánsson leikur kveðjuleik sinn á fimmtudagskvöld.
Jón Arnór Stefánsson leikur kveðjuleik sinn á fimmtudagskvöld. mbl.is/Kristinn Magnúss.

Craig Pedersen, landsliðsþjálfari karla í körfubolta, hefur valið 17 leikmenn í síðustu tvo leiki Íslands í riðli liðsins í forkeppni EM 2021, gegn Portúgal og Belgíu.

Leikið verður við Portúgal í Laugardalshöll á fimmtudagskvöld og gegn Belgíu á útivelli 24. febrúar. Belgía hefur þegar tryggt sér sigur í riðlinum en Ísland og Portúgal berjast um 2. sæti. Jón Arnór Stefánsson leikur sinn 100. og síðasta landsleik gegn Portúgal á fimmtudaginn.

Pedersen var á meðal áhorfenda í Laugardalshöll í bikarvikunni og sá meðal annars Stjörnuna landa bikarmeistaratitlinum. Hann valdi þrjá leikmenn úr bikarmeistaraliðinu og alls átta leikmenn sem voru á ferðinni í Höllinni í undanúrslitum og úrslitum Geysisbikarsins.

Æfingahópurinn:

Collin Pryor · Stjarnan

Dagur Kár Jónsson · Raiffeisen Flyers Wels, Austurríki

Elvar Már Friðriksson · Njarðvík

Gunnar Ólafsson · Keflavík

Haukur Helgi Briem Pálsson · Nanterre 92, Frakklandi

Haukur Óskarsson · Haukar

Hjálmar Stefánsson · Haukar

Hlynur Bæringsson · Stjarnan

Hörður Axel Vilhjálmsson · Keflavík

Jón Arnór Stefánsson · KR

Kristinn Pálsson · Njarðvík

Kristófer Acox · KR

Maciej Baginski · Njarðvík

Martin Hermannsson · Alba Berlín, Þýskalandi

Sigtryggur Arnar Björnsson · Grindavík

Tryggvi Snær Hlinason · Monbus Obradoiro, Spánn

Ægir Þór Steinarsson · Stjarnan

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert