Skalli Martins vakti athygli

Martin Hermannsson á ferðinni í Höllinni í gærkvöld.
Martin Hermannsson á ferðinni í Höllinni í gærkvöld. mbl.is/Hari

Martin Hermannsson naut sín vel í Laugardalshöll í gærkvöld í sigrinum á Portúgal í forkeppni Evrópumótsins í körfubolta og ein tilþrifa hans vöktu sérstaka athygli.

„Mig langaði alltaf að verða atvinnumaður í fótbolta,“ skrifaði Martin á Twitter-síðu sína þar sem hann deildi tilþrifum sínum úr leiknum er hann skallaði boltann áfram í skyndisókn sem skilaði tveimur stigum. Tilþrifin má sjá hér að neðan.

Martin og félagar halda nú til Belgíu þar sem þeir mæta heimamönnum í lokaleik riðilsins. Fjórar breytingar hafa verið gerðar á íslenska hópnum frá sigrinum í gær en það var síðasti leikur Jóns Arnórs Stefánssonar og Hlyns Bæringssonar fyrir liðið auk þess sem Haukur Helgi Pálsson leikur ekki gegn Belgum vegna meiðsla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert