Davidson féll úr leik í fyrstu umferð

Jón Axel Guðmundsson.
Jón Axel Guðmundsson. AFP

Jón Axel Guðmundsson og samherjar hans í Davidson eru úr leik í NIT-mótinu eftir 89:81-tap gegn Lipscomb í fyrsta leik í nótt. Mótið er boðsmót fyrir þau háskólalið sem voru næst því að komast í úrslitakeppni bandaríska háskólakörfuboltans. 

Jón Axel spilaði í 39 mínútur og skoraði níu stig, tók sjö fráköst og gaf tíu stoðsendingar. Hann hitti úr öllum sex vítaskotum sínum, en hafði hægar um sig en oft áður. 

Þórir Guðmundur Þorbjarnarson keppir einnig í NIT-mótinu með Nebraska og mætir hann Butler-háskólanum næstu nótt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert